21.05.2007 22:37 | ANNAÐ
MERKILEGT..
Ég fékk þetta áhugaverða email áðan:
"Sæll.
Þekki þig ekki neitt en datt í hug að þig langaði að skoða vefinn www.nffg.is. Ég er ekki frá því að þar hafi vefsíðugerðarfyrirtækið DesignEuropa stolið hönnun þinni. Veit það fyrir víst að þeir sem reka nffg.is borguðu DesignEuropa XXX þúsund krónur fyrir vefinn.
Mbk. Brynjar"
Ákvað að birta ekki verðið þar sem það gæti flokkast undir trúnaðarmál.
Ég segi bara dæmi hver fyrir sig en sjálfum finnst mér að þeir hefðu nú getað vandað sig örlítið meira eða þá allavegana stolið aðeins meiru fyrst þeir voru að því á annað borð.

