HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

27.03.2007 15:17 | ALMENNT

ÍBÚÐIR Í NEW YORK

Sigurjón félagi minn er að leigja íbúðina sína í sumar.
Tjékkið á þessu hér.

Viðbót:
Halli ætlar líka að að leigja sína íbúð.
Lesið um það hér.

SENDU ÞITT SVAR

26.03.2007 18:17 | ALMENNT

MÉR FINNST ÞETTA FLOTT

SVÖR FRÁ LESENDUM (2)

23.03.2007 15:32 | ALMENNT

VIÐSKIPTABLAÐIÐ

Það er ágæt grein um Peel í Viðskiptablaðinu í dag.

SVÖR FRÁ LESENDUM (2)

21.03.2007 20:51 | ALMENNT

VÉLMENNIN

Síðan mín var tekin í gíslingu af vélmennum sem vildu fylla allt af auglýsingum um doktorsgráður og viagra. Ég neyddist því til að taka aðeins til og mögulega hef ég hent einhverjum kommentum sem áttu það ekki skilið.
Ég bætti svo við litlum reit sem heitir "ár" svo að núna þegar þið skiljið eftir komment þurfið þið að slá inn ártalið í dag eða s.s. 2007. Þetta ætti að vera nóg til að gabba vélmennin í bili.

SVÖR FRÁ LESENDUM (1)