HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

07.12.2006 06:05 | TÓNLIST

BRÁÐUM KOMA JÓL..

Aha, bráðum koma jólin og ég hef varla skrifað staf hérna síðan í sumar. Skólinn fór af stað með látum og hélt svo áfram með lætin alveg fram að prófum. Eftir það fékk ég smá pásu sem var kærkomin en núna er allt orðið vitlaust aftur, glöggir lesendur sjá kannski að ég er að skrifa þessa færslu og klukkan er rúmlega 6. Ég er nefnilega að klára skýrslu fyrir morgundaginn, spennandi ha!
Annars er ég búinn að vera upptekinn við að skrifa forrit sem ég mun væntanlega skrifa meira um á næstunni og jafnvel setja upp sér síðu fyrir ef allt gengur vel. Þetta er mitt fyrsta forrit fyrir Mac þannig ég er spenntur að sjá hvernig tekst til.

Ég ætla að enda þetta blaður með lagi með Sufjan Stevens. Hann hóf einmitt mjög svo góða tónleika sína á íslandi með þessu lagi. Þvílík byrjun á frábærum tónleikum, gæsahúð allan tímann. Ég held að þetta sé eina almennilega upptakan sem er til af þessu lagi svo njótið vel.


Ps. Fyrir þá sem athuga stundum hvort ég hafi sett inn nýjar myndir þá er ég duglegri að setja inn myndir á Flickr en hingað inn. Hérna er Flickr síðan mín.

SVÖR FRÁ LESENDUM (4)