30.06.2006 17:31 | ALMENNT
SUMAR
Það er komið sumar og hver nennir að blogga á sumrin? Eru ekki allir úti að grilla og drekka
bjór eða þá að horfa á fótbolta og drekka bjór.
Annars er ég búinn að skipta og núna hittumst við Windows oftast bara þegar ég nota símann minn.
Nú fer að styttast í tónleika Belle & Sebastian fyrir austan, jább ég ætla að keyra yfir landið endilangt til að sjá þau. Mér fannst einhvernveginn aðeins meira spennandi að keyra út á land og gista í tjaldi í einhverjum smábæ, en að labba í 10 mínútur niðrá Nasa.
Svo er stefnan sett á tónlistarhátíð í Belgíu dagana 17-19. ágúst. Þar eru spila nokkur ágæt bönd eins og Radiohead, Belle & Sebastian, Hot Chip, Yeah yeah yeahs, Magic Numbers, Zero 7, Massive Attack, Daft Punk, Tv On The Radio, Broken Social Scene, Dresden Dolls, My morning Jacket, Album Leaf, Mew og fleira...
Annars vorum við að klára nýjan vef fyrir Naked Ape. Tolli teiknaði og ég sá um nördahlutann+ljósmyndun.
Ætli ég verði ekki að skella með tóndæmi fyrst ég er að þessu, hérna eru tvö lög með Peter Bjorn and John. Auðvitað sænskt, hvað annað?

