05.04.2006 21:05 | TÓNLIST
FÍNT PARTÍ!
Jæja ég er í prófum, sem þýðir bara það að maður nennir frekar að blogga um ekki neitt en að læra. Gott og vel, fólk hefur verið að nöldra yfir fáum uppfærslum og lélegu flæði upplýsinga á þessum vef mínum, sérstaklega þá skort á tónlistarbloggi.
Ég er alltaf alveg að fara að skrifa um það fínasta sem ég hef fundið en svo fresta ég því og það endar með því að einhver annar ágætur emmpjéþrírbloggari skrifar um það og þá nenni ég því ekki lengur. Núna var ég hinsvegar að komast yfir nýja plötu með Lo-Fi-FNK sem komu einmitt á Airwaves á síðasta ári. Platan heitir Boylife og það virðist vera alveg ágætis kraftur í henni og að minnsta kosti þrjú eða fjögur fín lög.
Fyrra lagið er helvíti hressandi lag sem þyrfti ekki nema svona 20bpm í viðbót og þá værum við komin með góðan danssmell.
Ég gæti hinsvegar alveg hugsað mér að dansa við seinna lagið næsta laugardag!
Ps. Svo eru þeir líka frá Svíþjóð!
05.04.2006 15:56 | ALMENNT
SKÁL!
Eru ekki allir byrjaðir að safna?

