06.03.2006 19:19 | ALMENNT
SORGLEGT...
Í dag er ég sorgmæddur, jú því í dag er mjög sorglegur dagur. Málið er að síðan mín er ekki lengur efsta færslan á Google þegar leitað er að "Hjalti". Í staðin er kominn "Hjalti Wikinger", sem er eflaust ágætis grey en síðan hans er mjög vond og á tæplega skilið að vera efst. Ég þarf klárlega að gera eitthvað í málunum eins og að lauma linkum á síðuna mína á alla vefi sem ég hef komið nálægt, já eða hef völd yfir.
Ef þú ert að lesa þetta en ert ekki með link á mig þá verður þú greinilega að hugsa þinn gang.
Tóndæmið er með bandinu Tapes 'n Tapes og heitir Insistor.
Uppfært
Sýnist ég hafa endurheimt fyrstasætið mitt. Vil þakka öllum þeim sem hafa linkað í mig og sérstaklega þeim sem gerðu sérstakar ráðstafanir til að bjarga þessu, það voru eftirtaldir aðilar.

