HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

30.12.2005 23:25 | TÓNLIST

TRIBUTE?

Ég get ekki annað en skrifað um tónleikana sem ég fór á í gær. Þetta voru tribute-tónleikar til heiðurs Elliott Smith. Hljómar mjög vel enda mjög fær tónlistarmaður en eitthvað hefur þeim mistekist að velja rétta fólkið til að flytja lögin hans. Hver tónlistarmaður hafði valið sér (að ég held) 2-3 lög eftir Elliott Smith og reyndi að flytja þau.
Þegar sá fyrsti steig á svið leist mér ekki allt of vel á, enda hafði hann tekið textana með sér. Það gat ekki boðað gott. Það var nú ekki betra en svo að honum tókst ekki einu sinni að syngja rétta texta þrátt fyrir hjálpartækin og leið mér strax hálf vandræðalega þarna.
Ég hugsaði nú með mér að þetta gæti ekki annað en batnað en eftir því sem lengra leið og fleiri tónlistarmenn stigu á stokk hætti mér alveg að lítast á blikuna.
Nánast allir byrjuðu á að afsaka sig, einn hafði bara valið lagið daginn áður og kunni það því ekki almennilega, annar hafði lítið sem ekkert æft sig, sá næsti var rosalega lélegur á gítar en ætlaði samt að reyna og svo framvegis.
Ég held ég hafi aldrei verið með jafn mikinn kjánahroll, svo slæmt var þetta að í einu atriðinu leið mér hreinlega svo illa að ég varð að fara niður á klósett til að heyra ekki öll ósköpin.
Ég verð nú samt að minnast á að Haukur Heiðar í Dikta og Kalli í Without Gravity komu best út úr þessu og gerðu þetta vel. Besti flutningurinn var án efa þegar Haukur Heiðar tók Kings Crossing af síðustu plötu Elliott Smith.
Þetta hefði getað endað sæmilega ef að Kalli hefði fengið að enda þetta en á eftir honum kom annar kappi sem ákvað að taka íslenska útgáfu af einu lagi. Ég náði því nú ekki einu sinni hvaða lag þetta var sem hann tók, svo hratt flýtti ég mér út.
Held að þetta séu verstu tónleikar sem ég hef farið á.... jáj blessaður skúter þú varst bara fínn!

SVÖR FRÁ LESENDUM (14)

26.12.2005 14:28 | TÓNLIST

ÁRSLISTI RJÓMANS

Í dag birti Rjóminn listann yfir beztu íslensku sem og erlendu plötur ársins. Fínn listi, nokkrar plötur þarna sem ég veit reyndar ekkert hvað eru að gera þarna en við erum með skemmtilega fjölbreyttan smekk sem skilaði sér þó í einróma niðurstöðu (allavegana í efstu þremur sætunum).
Annars sé ég mest eftir að hafa ekki gefið Bright Eyes, og plötunni hans "I'm Wide Awake, It's Morning", nokkur stig. Frábær plata. Það kom samt ekki að sök þar sem hún hafnaði í þriðja sæti, enda vel að því komin. Eiginlega sé ég meira eftir að hafa ekki farið á tónleika með stráksa þegar ég var í New York í vor. Tóndæmið er því með hinum unga Conor Oberst og afþví það eru nú einu sinni jólin þá held ég að það sé óhætt að skella tveimur lögum á ykkur.

SENDU ÞITT SVAR

25.12.2005 00:48 | TÓNLIST

JÓL!

Jæja! Núna eru komin jól! Húrra fyrir því. Mér hefur aldrei fundist nein jólalög skemmtileg og eina jólalagið sem ég hef fílað er "Christmas Time" með Smashing Pumpkins. Einar Birgir benti mér samt á skemmtilega ábreiðu af laginu "Last Christmas" í flutningi Erlend Øye. Þetta lag er einmitt eitt af þeim lögum sem ég þoli ekki en þetta sýnir að snillingar geta gert leiðinleg lög góð. (Jafnvel leiðinleg jólalög!)
Annars segi ég bara gleðileg jól!

Ps. Erlend Øye er að sjálfsögðu í Kings of Convenience dúóinu.

SENDU ÞITT SVAR

20.12.2005 03:24 | ALMENNT

SMÁ UPPFÆRSLA..

Er þetta ekki bara fínt? Ákvað aðeins að uppfæra útlitið og laga hitt og þetta. Það gætu samt verið einhverjir hnökrar á þessu en klukkan er orðin margt og ég ætla að koma mér í rúmið.
Tóndæmi kvöldsins er með The New Pornographers og heitir "The Bleeding Heart Snow".

SVÖR FRÁ LESENDUM (17)

08.12.2005 15:53 | TÓNLIST

LOVE IS ALL

Tóndæmið í dag er með fáránlega hressu sænsku bandi sem heitir Love is all. Nú er nýkomin plata með þeim sem heitir 9 Times That Same Song og er í styttri kantinum en hún er svo ótrúlega hress að hún kemst örugglega ofarlega á listann yfir plötur ársins. Sum lög minna mig á Sykurmolana, bassalínan í öðru minnir mig á Pixies og önnur lög minna mig á Architecture in Helsinki. Hljóðið er frekar hrátt og því mæli ég með að fólk hafi góð heyrnatól og hækki vel.
Hér er lagið "Aging Had Never Been His Friend".

SENDU ÞITT SVAR

02.12.2005 22:33 | TÓNLIST

BELLE & SEBASTIAN

Syd BarretÉg veit ekki hvernig mér tókst að gleyma einni uppáhalds hljómsveitinni minni í síðustu færslu. Belle & Sebastian eru konungar indie-poppsins (í mínum augum allavegana). Ég kynntist indie-poppinu almennilega þegar Siggi minn keypti Belle & Sebastian plötu á tilboði í Pennanum á Akureyri. Ég held ég hafi hlustað á plötuna mörg hundruð sinnum enda var þetta besta plata sveitarinnar, nefnilega, If You're Feeling Sinister.
Núna er hinsvegar að koma ný plata frá þeim sem heitir The Life Pursuit, og ég held ég verði að fullyrða að þetta er besta platan þeirra síðan If You're Feeling Sinister kom út. Hún er alveg frábær! Alveg rosalega góð og ég verð glaður þegar ég hlusta á hana.
Hver ætlar að koma með mér á tónleika eftir áramót? Sjálfboðaliðar óskast!

Uppfærsla


Þegar ég hlusta á "White Collar Boy" á nýrri plötu Belle & Sebastian líður mér eins og ég sé að hlusta á gamalt lag með Pink Floyd, á þeim tíma sem Syd Barret var ennþá með öllu mjalla. Ég er ekki frá því að "White Collar Boy" sé tribute til "See Emily Play" með Pink Floyd! Vonandi er ég fyrsti maðurinn á internetinu til að koma með þessa samlíkingu, enda enginn farinn að dæma plötuna svona snemma! HAH!

SENDU ÞITT SVAR