HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

24.11.2005 00:44 | TÓNLIST

TÓNDÆMI

Ég er búinn að skrifa einhverjar rosalegar færslur nokkrum sinnum og stroka þær svo allar út aftur. Held bara að það fari mér ekki að blogga. Ég hef hinsvegar ákveðið, sökum þess hversu latur ég er að skrifa um tónlist, að ég muni reyna oftar að brydda upp á tóndæmi dagsins. Þetta er ekki ósvipað og Gummi Jóh, rjómafélagi minn er oft með. Í kvöld er tóndæmi dagsins með geimrokkbandinu Slowdive. Þetta er alls ekki nýtt en það má heyra áhrifin frá þessari hljómsveit í mörgu nú til dags. Draumkennt rokk/popp af beztu plötu sveitarinnar Souvlaki og heitir „When the Sun Hits”.

SVÖR FRÁ LESENDUM (5)

21.11.2005 01:39 | TÓNLIST

UPPÁHALDS HLJÓMSVEITIR

Ég hef svona aðeins verið að velta þessu fyrir mér. Þær hljómsveitir sem ég kalla uppáhalds hljómsveitirnar mínar eru oft gamlar og einhverjar sem ég hef hlustað á rosalega lengi. Hugsanlega þær hljómvseitir sem ég byrjaði fyrst að finnast merkilegri en aðrar. Þetta eru líka þær hljómsveitir sem ég hlusta hvað minnst á. Ef einhver spyr mig hvaða hljómsveitir eru uppáhalds er ég frekar fljótur að svara; Smashing Pumpkins, Pink Floyd, Sigur Rós, Godspeed You Black Emperor!. Þetta eru þær hljómsveitir sem hafa sennilega haft hvað mest áhrif á þá tónlist sem ég hlusta á en samt fá þær mjög litla spilun hjá mér.
Langaði svona að fá álit ykkar á þessu, hlustið þið á þær hljómsveitir sem eru ykkar uppáhalds reglulega?

SVÖR FRÁ LESENDUM (18)