28.09.2005 03:19 | ALMENNT
PERSÓNULEGA BLOGGIÐ - PT. I
Það hlaut að koma að því, ég er fórnarlamb nýjasta bloggæðisins sem kallast að klukka. Ef maður er klukkaður þarf maður að segja frá fimm litið þekktum staðreyndum um sjálfan sig.
Hér kemur það.
- Ég er með rosalega blóðfóbíu og þá meina ég alveg svakalega. Þegar ég var yngri orgaði ég og veinaði ef ég svo mikið sem sá blóð. Skipti engu þótt það væri einhver allt annar en ég sem hafði meitt sig. Ég hef ekki lagast mikið því um daginn skar mig þannig að það fossblæddi úr fingrinum á mér og ég get svarið að það leið næstum yfir mig.
- Ég var einu sinni ljóshærður, alveg satt. Þetta var á þeim tíma sem ég fór rosalega oft í klippingu og var stundum með einhverjar strípur og fínerí. Eitt skiptið klúðraði klipparinn minn þessu svona svakalega og ég endaði nánast alveg ljóshærður. Ég myndi gefa mikið fyrir ljósmynd af mér frá þessum tíma.
- Ég á örugglega fleiri bjútíprodökt en allir vinir mínir til samans og ég er mjög sérvitur á bæði sápur og sjampó.
- Ég var einu sinni með rosalega hommafóbíu og stelpurnar (Díana eða Karen) höfðu sérstaklega gaman að því að stríða mér. Núna á ég marga vini sem eru hommar og held að ég sé með minni fóbíu en flestir sem ég þekki.
- Ég get ekki horft á kjánaleg atriði í bíómyndum eða sjónvarpsþáttum. Þetta eru svona hlutir sem láta mig fá kjánahroll og mér líður mjög vandræðalega. Stundum reyni ég að spóla yfir svona atriði eða set á pásu og fer að gera annað áður en ég get klárað að horfa.
Ég held að þetta séu mín fimm atriði og mig grunar að reglan segi að ég eigi að klukka fimm aðra. Ég held að ég láti það samt ógert.
08.09.2005 22:53 | LJÓSMYNDUN
NÝJAR MYNDIR
Ég setti inn nokkrar nýjar myndir og vegna þess að ég er kannski ekki sá duglegasti við að uppfæra myndasíðuna þá er best að skrifa svona fína frétt til að allir taki nú alveg örugglega eftir þessu. Þið megið samt endilega segja mér hvernig ykkur líkar þær.

