28.06.2005 10:50 | ALMENNT
DAVÍÐ MÓDEL!
Myndin hérna uppi er af Davíð vini hans Adda. Málið er að ég var að mynda hann í bak og fyrir í gær og fannst þessi mynd svo fyndin að ég ákvað að setja hana í toppinn hjá mér. Þannig þið gestir sem ekki þekkið mig þá er þetta ekki mynd af mér.
Uppfært
Búinn að taka myndina úr hausnum á síðunni og setja inn nokkrar af myndunum sem ég tók af honum.
Getið skoðað þær hér.
16.06.2005 12:55 | TÓNLIST
Í SPILARANUM...
Þá er maður kominn heim, reyndar rúm vika síðan en hvað um það. Það var frekar magnað í útlöndum og gaman að hitta Sigga og Jóhönnu og co. Eignaðist nýja fína myndavél en var samt aðeins of latur að mynda.
Annars er voða lítið að frétta nema maður er kominn í þessa venjulegu sumarrútínuna.
Það sem ég hef verið að hlusta á þessa dagana er nýja efnið frá Billy Corgan, Say Hi To Your Mom, Royksopp og Architecture In Helsinki.
Svona svo ég renni yfir þetta þá er nýja dótið hans Billy Corgan ekkert sérstakt, þetta svipar aðeins til Adore en er þó ekki nálægt því jafn gott, gæti verið b-side af b-side af Adore sem er búið að pródúsera of mikið. Þarna inn á milli eru svosem ágætis lög en ekkert mikið meira en það.
Royksopp og Say Hi To Your Mom eru með fínar plötur en skemmtilegast finnst mér þó nýja platan með Architecture In Helskinki, In Case We Die. Hún er eiginlega bara alveg frábær, skemmtilega súr inn á milli en missir sig samt aldrei í vitleysu. Talsvert öðruvísi en fyrri platan, sem heitir Fingers Crossed, og mjög gaman að sjá að þau eru ekki bara að framleiða meira af sama efni heldur leika sér og þora að breyta til. Þar höfum við það!

