HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

17.04.2005 19:38 | LJÓSMYNDUN

MYNDIR FRÁ AIRWAVES

Mér leiddist aðeins í prófalestri og setti inn myndirnar frá Airwaves. Ég hefði nú átt að vera búinn að setja þetta inn fyrir löngu en var búinn að gleyma þessum myndum en fann þær þegar ég fór að gramsa í dóti núna áðan. Vonandi nennir einhver að skoða þetta allt :)

SVÖR FRÁ LESENDUM (5)

16.04.2005 21:26 | TÓNLIST

HORSES IN THE SKY

Ég er núna þessa dagana að renna í gegn nýju plötunni frá Silver Mount Zion. Þar sem Efrim Horses in the skyúr Godspeed You! Black Emperor er fremstur í flokki. Þau gáfu út plötu í fyrra sem mér líkaði ekkert sérlega vel við en plöturnar á undan voru mjög góðar svo að ég hafði ekki gefið upp alla von ennþá.
Vandamálið er reyndar að ég hef alltaf átt erfitt með að fíla sönginn hjá Efrim, röddin er mjög veik og virkar oft fölsk og maður á hálf erfitt með að hlusta á hann lengi.
Horses in the sky er þó talsvert mikið betri en plata síðasta árs (This is our punk rock) en engu að síður koma kaflar þar sem Efrim gerir mig brjálaðann með skrýtnu vocali.
Ég ætla þó ekki að gefast upp og ég er farinn að fíla svona eins og hálfa plötuna og held að afgangurinn gæti komið ef ég gef henni meiri séns.
Ég set inn tvö dæmi hérna til að þið áttið ykkur á þessu betur, annars er maður hálf skyldugur að tjékka á þessu þar sem Gybe er jú með betri böndum síðasta áratugs.

SVÖR FRÁ LESENDUM (2)