21.03.2005 09:19 | ALMENNT
FABCHANNEL.COM
Þvílík gullnáma sem á fann áðan! Á þessari síðu eru upptökur af tónleikum (mynd/hljóð) með mörgum frábærum böndum. Þar má helst nefna Low, The Arcade Fire, Damien Rice, Azure Ray, Bright Eyes, Do Make Say think, Halifax Pier og Sonic Youth. Þetta er allt saman í fínum gæðum og streymir afar vel sérstaklega ef maður þarf ekki að borga fyrir erlent niðurhald. Einnig má þarna horfa á tónleika með Emiliönu Torrini í kvöld (s.s. bein útsending).
Þvílík hamingja!
18.03.2005 20:59 | TÓNLIST
JASON MOLINA / SONGS: OHIA / MAGNOLIA ELECTRIC CO
Fyrst að ég var að skrifa um Jason Anderson fannst mér vel við hæfi að skrifa um næsta Jason í röðinni. Jason Molina er kappi sem hefur oftast verið þekktur undir nafninu Songs:
Ohia. Hann hefur gefið út margar plötur og síðast Magnolia Electric Co sem er mjög fín plata. Hann hefur einni gefið út plötu undir sínu eigin nafni sem nefnist Pyramid Electric Co og er frekar hrá og laus við allt nema bara gítar og raul, einnig fín plata.
Ég held að það sé óhætt að líkja honum við Will Oldham og því sem ég kemst næst hafa þeir allvegana gert einhver lög saman. Það er einmitt oft svona country-fílingur í lögunum hjá Molina.
Það sem ég ætlaði hinsvegar að skrifa um er að núna hefur hann hætt að semja sem Songs: Ohia og búinn að stofna nýtt band sem hetir Magnolia Electric Co (jább sama og síðasta platan hans) og er búinn að fá með sér slatta af reyndu fólki. Þau gáfu út eina live plötu og eru svo að gefa út nýja sem heitir What Comes After The Blues. Eins og svo oft áður er þessi plata nú þegar lekin út svo að ég er búinn að krækja í hana og renna henni í gegn. Við fyrstu hlustun virðist þetta vera frekar lítil breyting frá Songs: Ohio en ég á þó eftir að melta þetta betur. Ég ætla að demba á ykkur tveimur lögum svona til að gefa ykkur nasasjón af þessu.
Annars er helst í fréttum að snillingurinn Devendra Banhart er að fara gefa út plötu ásam nokkrum öðrum listamönnum en mun hann eiga fimm ný lög á þessari plötu sem er væntanleg í maí. Hlakka til að heyra það!
17.03.2005 14:01 | ALMENNT
THE BLOOD BROTHERS
Ég lofaði Bjössa einhverju svaka hörðu indie! Hérna er eitthvað alveg geðveikt hresst sem pitchforkmönnum finnst svaka töff og æðislegt en mér finnst alveg hræðilegt.
Ég verð samt að vera kúl og harður og setja inn eins og eitt lag fyrir Bjössann minn.
Jæja Bjössi, öskraðu með!!!
Ps. Svaka hart nafn á bandi maður!
14.03.2005 09:26 | TÓNLIST
JASON ANDERSON
Vonandi eru allir jafn tónlistarþyrstir og ég þessa dagan. Ég ætla ekkert að vera að draga það að kynna meira gott efni. Núna ætla ég að benda ykkur á kappa sem heitir Jason Anderson. Hann gaf nýlega út plötuna Wreath sem er hans önnur plata (hef því miður ekki heyrt þá fyrri). Þetta er bara hörku fínt hjá stráknum og svona í svipuðum stíl og allt annað sem ég hef verið að skrifa um. Kannski ég ætti að fara að skrifa um einhverja aðra stefnu en þetta rólega indie. Allavega þá er hann með nokkuð skemmtileg lög og fær stelpu með sé til að syngja í sumum lögum sem gefa þeim skemmtilegri fíling. Allir að tjékka á þessu.
Ps. Eins gott að ég fái fídbakk annars nennir maður ekki að vera svona duglegur :)
13.03.2005 19:41 | ALMENNT
LOU BARLOW - EMOH
Vonandi allir búnir að jafna sig eftir frábæra tónleika Hot Chip. Ég verð þó að viðurkenna að
mér þótti fyrri tónleikarnir betri og skemmtilegri áhorfendur. Sýndist sumir vera að villast eitthvað þarna og vildu gera fátt annað en að hoppa á næsta mann og láta eins íslendingar eru vanir á rokktónleikum.
Lagavalið var gott og við fengum að heyra nokkur ný og fersk lög, eina sem var að angra mig var að soundið var ekkert sérstakt og oft var eins og vocalið dytti alveg út þegar mestu lætin voru. Ég get kannski kennt sjálfum mér um að troðast svona framarlega og hefði betur staðið nær miðju en frábært engu að síður.
Núna er ég að hlusta á ágæta plötu með Lou Barlow. Þetta er sennilega í svona svipuðum stíl og Iron and wine, Elliott Smith og það allt ef maður á að flokka þessa tónlist svona mjög gróflega. Þessi plata kom út nú á þessu ári og nefnist Emoh. Ég hafði heyrt eitthvað á hana minnst en ekki gefið mér tíma í hana. Ég ætla vera frekar djarfur og pósta einu lagi af henni hér :)
Njótið!
07.03.2005 14:47 | ALMENNT
HVAÐ ERU ÞIÐ AÐ HLUSTA Á?
Jæja, núna ættu allir að vera búnir að hlusta á Micah P, Emilíönu Torrinni og Decemberists og auðvitað búnir að kaupa sér miða á Hot Chip.
Það sem er svona mest í tækinu hjá mér þessa dagana er Sparklehorse. Mér finnst þetta band alveg æðislegt, hæfileg blanda af rokki og rólegu fyrir minn smekk. Þeir hafa gefið út þrjár plötur (sú nýjasta frá 2001) sem mér finnst allar mjög sambærilegar og erfitt að gera upp á milli þeirra. Ef að ég ætti að mæla með einhverri einni held ég að það yrði Good Morning Spider.
Annars langar mig að spyrja í lokin, hvað eru þið að hlusta á?

