HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

21.02.2005 22:56 | ALMENNT

HOT CHIP 11. MARS

Ójá! Ég ætla að fara og sjá Hot Chip 11. mars það er sko á hreinu og þið sem lesið þetta skuluð ekki láta ykkur vanta því ég hef trú á að þetta verði enn betra en síðast. Það eina sem þarf að bæta við þetta er: Ekki láta þig vanta á Nasa 11. mars! Það fær enginn leyfi núna hvorki Frank né Brynjar.
Annars er bara gott að frétta, nýji diskurinn hennar Emilíönu Torrini er mjög skemmtilegur, heilsteyptur og fer hvergi útaf sporinu, mjög smooth plata þar á ferð. Að lokum þá setti ég nokkrar myndir inn sem ég tók í þokunni um daginn.

Uppfært - 03.03.05

Miðasala hófst í dag í Tólf tónum á Skólavörðustíg. Miðinn kostar 1500kr og ég heyrði að það væru 450 miðar til.

SVÖR FRÁ LESENDUM (19)

12.02.2005 23:20 | TÓNLIST

NÝTT EFNI

Ég hef ekki verið að hlusta á margt nýtt undanfarið. Ég fekk nýju Decemberists plötuna og hef verið að hlusta á hana. Hún er bara nokkuð góð þó svo að ég kunni betur við eldri plötur. Svo var Árni Zúri að benda á plötu með manni sem kallar sig Micah P. Hinson. Það er alveg frábært efni sem ég mæli hiklaust með fyrir alla sem fíla Devendra Banhart, Will Oldham og fleira í þeim dúr.
Annars er voða lítið að frétta, ég hef ætlað að skrifa um eitthvað ferskt en hef ekki rekist á neitt ennþá svo að þetta verður að duga í bili.
Annars var ég að setja inn nokkrar nýjar myndir sem þið getið séð hér

SVÖR FRÁ LESENDUM (5)