31.12.2004 21:06 | TÓNLIST
ÁRSLISTINN
Hérna kemur listinn yfir þær plötur sem mér þóttu hvað bestar á árinu sem er að líða.
Til að byrja með er þetta frekar hrár listi og bara upptalning en aldrei að vita nema ég taki mig til og skrifi um efstu 10 sætin þegar tími gefst til. Endilega kommentið og látið mig vita ef ykkur finnst ég vera að skilja einhvern útundan. Annars segi ég bara gleðilegt nýtt ár!
- Devendra Banhart - Rejoicing Hands
- Hot Chip - Coming on Strong
- Kings of Convenience - Riot An An Empty Street
- Walkman - Bows and Arrows
- Modest Mouse - Good News For People Who Love Bad News
- Devendra Banhart - Niño Rojo
- Blonde Redhead - Misery Is a Butterfly
- The Aracade Fire - Funeral
- Joanna Newsome - The Milk-Eyed Mender
- Iron & Wine - Our Endless Numbered Days
- Mugison - Mugimama
- Björk - Medulla
- Sufjan Stevens - Seven Swans
- The Album Leaf - In a Safe Place
- Wilco - A Ghost Is born
- Elliott Smith - From a Basement on the Hill
- Electrelane - Power Out
- Magnet - On Your Side
- The Go! Team - Thunder, Lightning, Strike
- Max Richter - Blue Notebooks
- Cocorosie - Le Maison de Mon Reve
- Castanets - Cathedral
- Adem - Homesongs
- Gravenhurst - Flashlight Seasons
- Interpol - Antics
17.12.2004 19:22 | TÓNLIST
SUPERWOLF
Jæja ég er mættur aftur, þýðir ekkert að slaka á þegar maður fær svona góðar viðtökur.
Núna ætla ég að segja ykkur frá Superwolf sem er glænýtt efni frá Will Oldham (stundum þekktur sem Bonnie Prince Billy) og Matt Sweeney. Það ættu flestir að þekkja Will Oldham
eða hafa heyrt um hann, hann hefur gefið út margar frábærar plötur og ekki ómerkilegri menn en Johny Cash hafa coverað hann. Hann hefur einnig hitað upp fyrir bæði Björk og Sigur Rós. Hann er klárlega snillingur og ætla ég ekki að hafa fleiri orð um það nema þeir sem vilja kíkja betur á hann ættu að kynna sér plöturnar I see a darkness, Master and everyone og Ease down the road.
Matt Sweeney er hinsvegar kappi sem maður hefur minna heyrt um, ég veit að hann er tengdur Guided by voices sem er hljómsveit sem mér líkar svosem ekkert sérlega vel við en hvað um það þá eru þeir Will Oldham og Matt alveg frábærir saman og söngur þeirra saman með því betra sem maður heyrir. Platan sem þeir kappar senda frá sér á næstunni heitir einfaldlega Superwolf og er alveg frábær í alla staði.
Ég mæli eiginlega bara með öllum lögunum en svona til að pikka út einhver sérstök ætla ég að benda ykkur á 'Beast for thee', 'Lift us up' og 'I gave you'.
16.12.2004 00:09 | TÓNLIST
WOMAN KING
Jæja loksins kemur fyrsta bloggið um tónlist.
Vegna þess að mér áskotnaðist nýr EP í kvöld þá hef ég ákveðið að skrifa um hann.
Þetta er s.s. nýjasta efnið frá Iron & Wine, sem er fyrir þá sem ekki þekkja, eins manns verkfeni sem Samuel Beam stendur á bak við.
Hann hefur sent frá sér tvær breiðskífur sem heita The Creek Dank The Cradle (2002) og Our Endless Numbered Days (2004). Þessar tvær plötur eru báðar æðislega frábærar og ég mæli með þeim fyrir alla sem kunna að meta rólegt gítarraul.
Platan sem ég nældi mér í heitir Woman King og ininheldur sex ný lög og er væntanleg snemma á næsta ári. Það sem mér finnst skemmtilegast við þessa plötu er að kallinn er mættur með aðeins fleira en bara gítarinn og fer örlítið lengra með lögin en á fyrri plötum sem voru frekar hráar. Hann er samt ekkert með neina stæla og kemur þessu öllu mjög vel frá sér og platan rennur mjög þægilega í gegn. Ég ætla að mæla sérstaklega með tveimur lögum sem mér finnst vera lýsandi fyrir þetta efni og það er titillagið Woman king og In my lady's house. Annars er óhætt að mæla með þessu öllu og ekki síst fyrir þá sem hafa gaman að fyrri diskum.
Ps. Ég kann ekki við að vista lögin hér fyrir lesendur en það má þó alltaf hnippa í mig og ég ætti að geta reddað sem flestum.

