27.10.2004 16:36 | ALMENNT
VEFVERÐLAUN 2004
Nú rétt í þessu var að birtast listi yfir tilnefningar í íslensku vefverðlaununum 2004. Ég renndi snöggt yfir listann og bölvaði því að Icelandic National Team væri ekki á honum, en þegar ég fór að skoða listann betur sá ég að minn vefur er tilnefndur í flokkinum 'besti einstaklingsvefurinn'. Ég verð nú að viðurkenna að þetta kemur mér dálítið á óvart þar sem ég er ekki sá duglegasti að skrifa greinar og oftast uppfæri ég bara myndaalbúmið á síðunni. Annars er ég auðvitað hæst ánægður með þetta og ég tek það skýrt fram að ég tilnefndi mig ekki sjálfur né skrifaði eitthvert geðveikislegt forrit sem tilnefndi mig 150 milljón 150 sinnum.
Það eruð því væntanlega þið sem eruð að lesa þetta núna sem tilnefnduð mig og ég vil þakka ykkur kærlega fyrir það!
Takk fyrir mig.
Kveðja,
H
13.10.2004 21:19 | ALMENNT
AIRWAVES 2004
Nú fer að styttast í Iceland Airwaves 2004 en þetta er að ég held í fimmta skipti sem þessi frábæra hátíð er haldin. Það eru mörg skemmtileg bönd sem ég hlakka mikið til að sjá og má þar helst nefna, Adem, Hot Chip, Four Tet, Magnet og svo auðvitað fjölmörg íslensk bönd sem ég hef eflaust séð áður.
Dagskráin er nokkuð þétt svo að maður á ekki auðvelt með að velja á milli hljómsveita því auðvitað skarast einhverjir viðburðir.
Hinsvegar tókum við Addi okkur til og settum dagskrána upp á mun betri máta (að okkur fannst) en gert er á vef hátíðarinnar. Þetta ætti að auðvelda fólki að sjá hvenær bönd eru að spila á sama tíma. Tekið skal fram að sumir atburðir voru skráðir með meiri nákvæmni en taflan býður upp en okkur fannst fimm mínútur til eða frá ekki skipta máli enda kemur þetta væntanlega allt til með að færast örlítið til.
Þetta má svo nálgast hérna á bæði HTML- og Excel-formi.

