08.09.2004 18:19 | ALMENNT
FLUTTUR OG FLEIRA
Jæja, þá er maður loksins búinn að uppfæra vefinn hjá sér enda kominn tími til.
Margir búnir að kvarta mikið yfir letinni í mér. Annars er bara allt fínt að frétta, ég flutti um síðustu mánaðarmót (júlí/ágúst) í litla íbúð á Bergþórugötu. Þetta er einmitt íbúðin sem Hörður, Anna Jóna og Högni bjuggu í. Já og svo er skólinn byrjaður og maður hefur minni tíma fyrir vinnu og enn minni fyrir ljósmyndatúra.
Annars setti ég inn tvö ný albúm, annað er frá því ég fór til Akureyrar um helgina og myndaði smá með Trausta og hitt er svo bara allt mögulegt sem ég hef verið að taka frá því ég uppfærði síðast.
Kveðja,
H

