HJALTI JAKOBSSON

Ég starfa við hugbúnaðargerð hjá Hugsandi mönnum og stunda nám við Háskólann í Reykjavík. Ég reyni að nota frítímann minn í að ljósmynda. Einnig sé ég, ásamt fleiru góðu fólki, um vefinn Rjóminn.is þar sem hægt er að lesa dóma og greinar um tónlist.

LJÓSMYNDUN

Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.

27.06.2004 05:50 | ALMENNT

KEMUR HJALTI...

Ég verð að játa það að ég er frekar pirraður núna. Þannig standa málin að ég er búinn að vera bara rólegur í allan dag eftir að hafa verið í fínu partyi í gær og hafði því ekki mikla lyst á fleiri ævintýrum þessa helgina.
Ég ákvað því bara að skreppa smá bíltúr til að brjóta aðeins upp þessa tölvusetu mína. Ég fer því út og sæki Björgvin og við hefjum rúntleikinn. Við erum búnir að rúnta í ágæta stund og ákveðum þá að kíkja á Dillon. Það var ágætt, pínu sérstakt að vera edrú í svona miklum hávaða og velti ég fyrir mér að fá mér einn bjór en ákvað svo að sleppa því.
Við skutluðum okkur aftur út í bíl og keyrum örlítið lengur, ég veit svo ekki fyrr en lögreglan skellir ljósunum á mig og gefur mér þar af leiðandi merki um að keyra út í kant. Auðvitað geri ég það, algjörlega saklaus drengurinn og blá edrú. Það fyrsta sem blessuð lögreglan rekur augun í er að ökuskýrteinið mitt er fyrir LÖNGU útrunni. Já, ekkert fyrir nokkrum vikum eða mánuðum, heldur fyrir um þremur árum. Ég algjörlega saklaus hafði minnsta grun um að ég væri ekki einu sinni með löglegt bílpróf. Ég er ekki frá því að ég hafi sett upp svona sakleysis/undrunarsvip eins og hægt er að sjá eftir hverja einustu harkalegu tæklingu í fótbolta.
Ég var því næst beðinn um að setjast upp í bíl þar sem þeir athuguðu þetta nánar, jújú þetta stemmdi handónýtt ökuskýrteini og ég algjörlega kol ólöglegur. Nú var ég sannarlega grunsamlegur og næsta víst að ég væri stórhættulegur glæpamaður og því lá beinast við að láta mig blása. Ég var nú meira en lítið til í það og ætlaði aldeilis að sanna að ég væri alsaklaus þar. Það gekk svo ekki betur en svo að það mælist eitthvað í mér.
Ef að ég hafði ekki sett upp sakleysis/undrunarsvip áðan þá kom hann sko sannarlega þarna! Þetta var algjörlega ekki möguleiki þar sem klukkan var að ganga fjögur og ég hafði ekki bragðað dropa síðan um ellefu kvöldið áður. Ég er ekki frá því að ég hafi verið farinn að titra og ekki bætti þetta framburð minn um sakleysi mitt. Ég reyndi þó að mótmæla og þar sem þetta var analog-mælir sem virkar þannig að það litast einhver korn ef áfengi mælist og því neitaði ég að trúa honum. Lögreglan hringir því á annan bíl sem kom færandi hendi með tölvumæli sem mér leist nú heldur betur á, enda allt sem tengist tölvum fullkomið og svíkur auðvitað aldrei.
Þá hefst taka tvö, ég blæs af öllum krafti í þetta frábæra tölvustýrða tæki og jújú, gekk ekki betur en svo að ég mælist aftur með örlítið í mér. Ég þekki reyndar ekki inn á þennan áfengiskvarða en einkunnin sem mælirinn "góði" gaf mér var 0.10.
Þetta nú reyndar alltof lítið til að hægt sé að sekta mig eða sakast við mig en engu að síður þótti mér þetta afskaplega gremjulegt. Lögreglumennirnir horfðu nú enn grunsamlegri augum á mig og spurðu mig í sífellu hvort ég hefði ekki einu sinni fengið mér smáááá sopa. "Neihh, bara kók.." segi ég alveg eins og auli. Svo mundi ég allt í einu eftir því að ég skellti í mig munnskoli áður en ég fór og fyrir einhverja slysni hafði ég lesið á því að það innheldur alcohol. Ég reyndi því að nota það sem afsökun en auðvitað hafði ég ekki drukkið munnskolið og því kannski ekki besta skýringin á þessu dularfullu áfengi sem í mér var.
Þetta endar svo með því að ég neyðist til að ganga heim því Björgvin er ekki betri en það að hann hefur ekki ennþá "nennt" að taka bílprófið og því var hann án efa óheppilegasti vinur minn sem ég hefði hugsanlega mögulega getað farið með á rúntinn. (Sorry Björgvin, no offence :).
Mín niðurstaða í þessu máli er því að ég sé með sjálfvirka alcohol-stöð í mér og hver veit nema ég geti þjálfað einhverja kirtla til að framleiða aðeins meira alcohol en 0.10 og því orðið fullur af sjálfsdáðum, það gæti nú sparað mér örfáar krónur.
Að lokum getið þið svo óskað mér til hamingju með að vera bílprófslaus (sem ég hef reyndar verið síðustu þrjú árin og þið eruð því öll sek um að hafa setið í bíl með glæpamanni!) og þurfa líklegast að taka bílprófið aftur rétt eins og gamall kall sem hefur ekki keyrt í hálfa öld.
Skál fyrir því!

Ps. Önnur ástæða fyrir því að skála er sú að þetta myndi teljast sem jómfrúar-blogfærslan mín og að því tilefni útbjó ég svarkerfi svo lesendur geti tjáð sínar skoðanir.

Uppfærsla


Jæja, þá hef ég endurheimt bílprófið til sjötugs. Ég þurfti s.s. eins og áður sagði að taka allt heila dótið aftur en maður bjargaði því svosem :)

SVÖR FRÁ LESENDUM (17)

21.06.2004 21:59 | ALMENNT

VAMM

Ég hef aðeins verið að mynda síðustu daga fyrir blað sem heitir VAMM og kemur líklega út á miðvikudaginn.
Ég hef svona verið að mynda hitt og þetta fyrir þá, fyrst Pixies og Korn, svo myndaði ég fullt fullt af hármódelum og aðeins fyrir einhverja auglýsingu.
Annars mun ég setja eitthvað af þessum myndum inn þegar blaðið er komið út, þangað til vona ég bara að þetta komi sæmilega út.

SENDU ÞITT SVAR