HJALTI JAKOBSSON
Ég er fæddur og uppalinn á Akureyri en flutti til Reykjavíkur haustið 2003 og bý þar í
miðbænum, nánar tiltekið á Bergþórugötu 57.
Foreldrar mínir heita Hrefna Jóhannesdóttir og Jakob Ragnarsson og búa á Akureyri en ég á eina systur sem heitir Jóhanna og býr í Kanada ásamt unnusta sínum Jóhanni Tómasi. Þau eignuðust lítinn strák í júlí 2004 sem heitir Jakob Ragnar og er skírður í höfuðið á pabba og Ragnari bróður.
Vorið 2003 útskrifaðist ég frá Menntaskólanum á Akureyri en frá því ég flutti til Reykjavíkur hef ég starfað sem forritari hjá hugbúnaðarfyrirtæki sem heitir Hugsandi menn og er staðsett í Skeifunni. Haustið 2004 hóf ég nám við Háskólann í Reykjavík og legg þar stund á B.Sc í tölvunarfræðum.
Myndin hér til hægri er tekin af Birki Baldvinssyni vorið 2005.
ÁHUGAMÁL
Ásamt tölvum og öllu sem þeim tengist er ljósmyndun eitt af mínum stærstu áhugamálum og ekki síst eftir að ég fór að vinna meira við tölvur. Þörfin fyrir að komast burt frá tölvunni og út með vélina er alltaf að aukast og ég læt mig dreyma um að jafnvel einhvern tíma eigi ég eftir að fá tækifæri til að læra ljósmyndun.
DESIGNPLASTIK & ICELANDIC NATIONAL TEAM
Ég er meðlimur og stofnandi Designplastik ásamt Sigga Eggertssyni góðum vini mínum. Designplastik byrjaði sem 'brand' fyrir þá hluti sem við Siggi vorum að vinna á þeim tíma sem það var stofnað eða kring um 2001. Rúmlega ári síðar bættist svo þriðji meðlimurinn, Björgvin Guðnason í hópinn og svo nú fyrir stuttu gekk Aaron Mitchell til liðs við okkur.
Annað verkefni sem ég kom að er Icelandic National Team. Vefur sem tók á því helsta sem var að gerast í hönnun, ljósmyndun, list og menningu á Íslandi. Vefurinn hefur því miður verið lagður niður en meðan hann lifði gegndi ég starfi vefstjóra.
CURRICULUM VITAE (CV)
Hægt er að nálgast ferilskrána mína á pdf-formi á þessari slóð:
LJÓSMYNDUN
Ég hef lengi haft mikinn áhuga á ljósmyndun en hafði aldrei reynt almennilega fyrir mér fyrr en ég keypti mér almennilega vél sumarið 2003. Síðan þá reyni ég að slíta mig reglulega frá tölvunni og fara út og taka nokkrar myndir.
.
GRÆJUR
Fyrir þá sem hafa gaman af græjum þá er þetta listi yfir það sem ég nota.
- Canon EOS 1D Mark-II
Canon EOS 10D + BG-ED3 Battery Grip- Canon EF 70-200 f/2.8L IS USM
- Canon EF 17-40 f/4L
Canon EF 28-135mm f/3.5-5.6- Canon EF 50mm f/1.8
- 2x 1gb Sandisk Ultra II
Lexar 512mb CF & IBM Microdrive 1gb- Polaroid SX-70
- Holga
- Canon EOS A2
- Hasselblad 501C
- Hasselblad A12 Bak
- 80mm Carl Zeiss 2.8
AÐRIR LJÓSMYNDARAR
Hérna eru nokkrir ungir og efnilegir ljósmyndarar sem eru duglegir að taka myndir.
UM VEFINN
Þessi vefur er keyrður á kerfi sem ég hef í gegnum tíðina verið að þróa. Það heldur utan um allt efni á vefnum og hefur einnig sérstaklega hannað kerfi til að halda utan um myndaalbúm og stafrænar ljósmyndir. Ég hef nú þegar sett það upp fyrir fjölmarga vefi. Dæmi um vefi sem nota kerfið eru:
- Icelandic National Team (v.1.5)
- Gott Fólk McCann (v.2.0)
- Dregg.is (v.2.0)
- Birkir.dagsljos.is (v.2.0)
- Audunn.com (v.1.0)
- Xbox.is (v.1.0)
(Talan í sviganum segir til um hvaða útgáfu af kerfinu vefirnir nota.)
Þeir sem hafa áhuga á að vita meira um þetta geta sent mér tölvupóst.
Þess má geta að vefsíðan mín var tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna 2004 í flokkinum besti einstaklingsvefurinn. Hægt er að sjá vefina sem voru tilnefndir hér.
FYRIRSPURNIR
Hægt er að senda mér tölvupóst með því að fylla í formin hér fyrir neðan

