17.10.2007 12:32 | TÓNLIST
AIRWAVES
Jæja dagskráin sem allir hafa beðið eftir.
Airwaves 2007
Við Addi höfum alltaf eytt hellings tíma í að græja þetta en núna er þetta nokkurnveginn orðið sjálfvirkt kerfi. Hérna er hægt að velja bönd:
Hvað ætlar þú að sjá?
10.10.2007 09:40 | TÓNLIST
IN RAINBOWS
Fullkomið.
28.07.2007 20:44 | ALMENNT
PEEL 1.0
Í kvöld er útgáfupartí! Peel 1.0 kemur út eftir nokkrar mínútur og þá geta allir flýtt sér á getpeel.com og keypt sér eintak. Planið er að safna saman öllum vinum mínum sem hafa hjálpað mér með Peel og sprauta yfir þá kampavíni þegar ég hef sett útgáfuna í loftið.
Takk fyrir mig!
21.05.2007 22:37 | ANNAÐ
MERKILEGT..
Ég fékk þetta áhugaverða email áðan:
"Sæll.
Þekki þig ekki neitt en datt í hug að þig langaði að skoða vefinn www.nffg.is. Ég er ekki frá því að þar hafi vefsíðugerðarfyrirtækið DesignEuropa stolið hönnun þinni. Veit það fyrir víst að þeir sem reka nffg.is borguðu DesignEuropa XXX þúsund krónur fyrir vefinn.
Mbk. Brynjar"
Ákvað að birta ekki verðið þar sem það gæti flokkast undir trúnaðarmál.
Ég segi bara dæmi hver fyrir sig en sjálfum finnst mér að þeir hefðu nú getað vandað sig örlítið meira eða þá allavegana stolið aðeins meiru fyrst þeir voru að því á annað borð.

